Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 3. 2019 | 23:59

PGA: Dufner efstur í hálfleik á Wells Fargo

Það er nafn sem ekki hefir sést lengi meðal hinna efstu, sem er í efsta sæti á móti vikunnar á PGA Tour, Wells Fargo Championship, en það er Jason Dufner.

Dufner er í forystu í hálfleik á samtals 11 undir pari, 131 höggi (68 63).

Í 2. sæti eru þeir Joel Dahmen og Max Homa, báðir 1 höggi á eftir.

Þrír efstu hafa nokkra sérstöðu, allir á tveggja stafa tölu yfir pari, meðan þeir næstu sem verma 4. sætið Rory McIlroy og Patrick Reed eru á samtals 6 undir pari, hvor.

Til þess að sjá stöðuna á Wells Fargo Championship að öðru leyti SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Wells Fargo Championship SMELLIÐ HÉR: