Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2019 | 23:59

PGA: Fitzpatrick efstur í hálfleik St. Jude

Það er enski kylfingurinn Matthew Fitzpatrick, sem er efstur eftir 2. keppnisdag FedEx St. Jude meistaramótsins. Hann er búinn að spila á samtals 9 undir pari, 131 höggi (67 64).

Í 2. sæti, aðeins 2 höggum á eftir, eru 4 kylfingar: Jon Rahm, Patrick Canlay, Billy Horschel og Cameron Smith.

Japanski kylfingurinn Shugo Imahira er einn í 6. sæti á samtals 6 undir pari.

Sjá má stöðuna að öðru leyti á St. Jude með því að SMELLA HÉR:

Sjá má hápunkta 2. hring á St. Jude með því að SMELLA HÉR: