Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 25. 2024 | 20:30

PGA: Horschel dro sig úr 3M Open

Mót vikunnar á PGA Tour er 3M Open. Það fer fram í Blaine, Minnesota, dagana 25.28. júlí 2024.

Billy Horschel mætti ekki á teig í morgun á 3M Oepn.

Horschel, sem var í 2. sæti á Opna breska um síðustu helgi, bar fyrir sig veikindi.

Sá sem er í forystu snemma 1. dags er Jacob Bridgeman, en fugl á 18. braut tryggði honum 63 högga glæsihring!

Jacob Bridgeman hefir spilað í 22 PGA Tour mótum og hefir ekki enn náð að vera meðal 10 efstu – þannig að tími er kominn til að snúa dæminu við ætli hann sér að halda sér á mótaröðinni.

Þessi 24 ára fyrrum stúdent við Clemson háskóla var í forystu mestmegnið af morgninum og heldur forystu sinni enn, þó þó nokkrir eigi eftir að ljúka leik

MacKenzie Hughes frá Canada er í 2. sæti kom í hús á 7 undir pari, 64 höggum á TPC Twin Cities.

Þetta var frábær dagur,” sagði hinn 33 ára Hughes, sem er frá Hamilton, Ontario.

Mér fannst ég vera alveg nógu vel inn í leiknum snemma dags en fann svolítinn ritma í sveiflunni eftir 7-8 holur og fór að slá betur og pútterinn var ágætur í dag. Það var gaman á flötunum.”

Hughes á í beltinu 2 sigra á PGA Tour.

Fylgjast má með stöðunni á 3M Open með því að SMELLA HÉR:

Í aðalmyndaglugga: Jacob Bridgeman.