Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2020 | 20:00

PGA: Hovland sigraði á Mayakoba

Það var norski frændi okkar, Viktor Hovland, sem sigraði á móti vikunnar á PGA Tour, sem var Mayakoba Golf Classic presented by UNIFIN.

Mótið fór fram á El Camaleon golfklúbbnum á Playa del Carmen,  í Mexíkó dagana 3.-6. desember sl.

Sigurskor Hovland var 20 undir pari og átti hann 1 högg á Aron Wise, sem varð í 2. sæti á samtals 19 undir pari.

Í 3. sæti urðu síðan bandarísku kylfingarnir Adam Long og Tom Hoge, báðir á 17 undir pari, hvor.

Sjá má lokastöðuna á Mayakoba Golf Classic með því að SMELLA HÉR: