Kyle Stanley.
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 29. 2012 | 05:30

PGA: Kyle Stanley heldur forystunni eftir 3. dag Farmers Insurance Open

Bandaríkjamaðurinn Kyle Stanley jók forystu sína á 3. degi Farmers Insurance Open. Hann spilaði 3. hring á 68 höggum, -4 undir pari og fékk 5 fugla og 1 skolla, skollann á par-4 12. braut Suður-vallarins. Skyldi Kyle vita það að hann á sama afmælisdag upp á ár og annar frábær kylfingur, þar sem er Azahara Munoz frá Spáni? Bæði eru fædd 19. nóvember 1987. Já, merkilegt hvað góðir kylfingar eiga oft sama afmælisdag! Bæði tvö „cool“ og sporðdrekast um golfvelli heimsins, eins og svo margir aðrir góðir kylfingar.

Alls hefir Kyle spilað á samtals -18 undir pari, 198 höggum (62 68 68) og hefir 5 högga forystu fyrir lokahringinn á þá sem næstir koma og deila 2. sætinu þá John Rollins og John Huh. Huh? Hver er Huh? (Sjá um það í grein hér á Golf 1 um: Hver er kylfingurinn John Huh?) Rollins og Huh eru á samtals -13 undir pari, 203 höggum; Rollins (70 65 68) og Huh (64 71 68).

Kyle Stanley.

Í 4. sæti eru Bill Haas og Sang-Moon Bae á samtals -12 undir pari, hvor.

Það er ekkert sérlega spennandi PGA-kvöld framundan, þar sem Kyle Stanely virðist hafa þetta í hendi sér… en golf er golf þar sem allt getur gerst…. tveggja högga víti eins og Rory fékk í Abu Dhabi getur t.a.m. sett allt úr skorðum svo og gott gengi næstu kylfinga… þannig að það er best að fylgjast með þó ekki sé nema að sjá Kyle Stanley tryggja sér sigurinn!

Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag Farmers Insurance Open, smellið HÉR: 

Til að sjá hápunkta 3. dags á Farmers Insurance Open smellið HÉR: 

Til þess að sjá högg dagsins, sem er fugl Kyle Stanley á par-3 16. brautinni, smellið HÉR: