Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 28. 2012 | 06:00

PGA: Kyle Stanley leiðir þegar Farmers Insurance Open er hálfnað – Myndskeið: hápunktar og högg 2. dags

Kyle Stanley fylgdi frábæru skori sínu í gær upp á 62 högg eftir með glæsilegum hring á erfiðari Suður-vellinum upp á 68 högg og leiðir þegar Farmers Insurance Open er hálfnað á samtals 130 höggum, samtals -14 undir pari.

Fast á hæla honum á -13 undir pari, aðeins höggi á eftir, kemur landi hans, Brandt Snedeker, sem er búinn, með undraverðum flýti, að ná sér af bakmeiðslum.

Bandaríski kylfingurinn Brandt Snedeker

Þriðja sætinu  á samtals -12 undir pari, deila Sang-Moon Bae, frá Suður-Kóreu og Martin Flores frá Bandaríkjunum. Sang-Moon Bae komst á PGA í gegnum Q-school s.l. desember og Martin Flores var einn af 25 sem hlaut kortið sitt með því að verða efstur á peningalista.

Fimmta sætinu á samtals -10 undir pari hvor deila Bandaríkjamennirnir Hunter Mahan og Bill Haas.

Til þess að sjá stöðuna þegar Farmers Insurance Open er hálfnað smellið HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Farmers Insurance Open smellið HÉR:

Til þess að sjá högg dagsins, sem Steve Marino átti á par-4, 17. holunni fyrir erni á 2. degi Farmers Insurance Open smellið HÉR: