Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 21. 2012 | 02:00

PGA: Nokkrar staðreyndir eftir sigur Bill Haas á Riviera

Bill Haas vann 4. sigur sinn á PGA TOUR í 195. mótinu sem hann tekur þátt á, á PGA TOUR, 29 ára, 8 mánaða og 25 daga gamall.

● FedExCup sigurvegarinn 2011 fær 500 stig og fer í 4. sæti FedExCup stigalistans með 729 stig. Kyle Stanley er enn í forystu á listanum með 889 stig.

● Aðrir sigrar Bill Haas eru: 2010 Bob Hope Classic, Viking Classic; 2011 TOUR Championship by Coca-Cola.

Á Northern Trust Open, sem hann sigraði á, nú um helgina:

● var Bill Haas jafn Keegan Bradley og Cameron Tringale í 1. sæti í lægstum púttafjölda, með  103 pútt.

● Þetta er fyrsti topp-10 árangur hans í 7 mótum sem hann hefir spilað í. Besti árangur hans fyrir sigurinn á þessu ári var T-12. Bill komst ekki í gegnum niðurskurð á Riviera CC árin 2009 og 2010.

● Með sigrinum nú á sunnudaginn s.l. vann Bill 17. umspil í sögu mótsins. Síðasta umspil mótsins var árið 2007 þegar Charles Howell III vann Phil Mickelson með pari á 3. holu umspils.

● Fjórir sigrar Bill Haas á PGA Tour eru 2. flestir sigrar kylfings á þrítugsaldri á PGA Tour. Hér er upptalning kylfinga með fleiri en 3 sigra: Dustin Johnson (5), Haas (4), Sean O’Hair (4), Camilo Villegas (3), Anthony Kim (3) and Hunter Mahan (3).

● Pabbi hans, Jay, vann 4. mótið sitt eftir að hafa spilað í 180 mótum. Síðan vann Haas eldri 5. mótið sitt vikuna á eftir í 181. mótinu sem hann tók þátt í. Besti árangur Jay Haas eftir að hafa spilað 25 sinnum í Northern Trust Open er T3 árið 1992.

● Umspils-tölfræði Bill batnar í 2-2 in playoffs (2011: Tapaði/Bob Hope Classic, Tapaði/Greenbrier Classic, Vann/TOUR Championship by Coca-Cola, 2012: Vann/Northern Trust Open). Hann hefir sigrað í síðustu tveimur umspilum, sem hann hefir tekið þátt í.

Heimild: PGA Tour.