Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2019 | 23:59

PGA: Palmer og Rahm sigruðu á Zurich Classic

Það voru þeir Ryan Palmer og Jon Rahm, sem stóðu uppi sem sigurvegarar á Zurich Classic.

Sigurskor þeirra var 26 undir pari, 262 högg (64 65 64 69).

Í 2. sæti 3 höggum á eftir voru þeir Tommy Fleetwood og Sergio Garcia á samtals 23 undir pari, 265 höggum (65 68 64 68).

Í 3. sæti voru síðan jafnir þeir Brian Gay og Rory Sabbatini annars vegar og Kyoung-Hoon Lee og Matt Every hins vegar, á samtals 21 undir pari.

Sjá má lokastöðuna á Zurich Classic með því að SMELLA HÉR: