Ragnheiður Jónsdóttir | september. 12. 2019 | 18:00

PGA: Rory kylfingur ársins!

Rory McIlroy var valinn kylfingur ársins á PGA Tour í 3. sinn á ferli sínum.

Þeir sem kosningarétt eiga eru þeir sem tekið hafa þátt í a.m.k. 15 FedEx Cup mótum.

Rory var tekinn fram yfir menn á borð við Brooks Koepka og Xander Schauffele, sem vel voru að heiðurstitlinum komnir.

Þegar ljóst var að Rory hefði verið valinn sagði hann m.a.: „I’m very humbled and very honored,“ It validates some of the decisions I made to start the year, and I couldn’t be more proud.“

(Lausleg þýðing: „Ég er auðmjúkur og mér er þetta mikill heiður. Þetta staðfestir sumt af þeim ákvörðunum, sem ég tók í byrjun árs og ég gæti ekki verið stoltari.“ )