Bubba Watson
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2016 | 11:00

PGA: Sjáið frábæran „næstum því ás“ hjá Bubba á TOC! – Myndskeið

Á lokahring Hyundai Tournament of Champions sáust margir snilldartaktar.

M.a. drævaði sleggjan Bubba Watson bolta sínum á par-4 10. braut Plantation vallarins þannig að hann fékk næstum því ás.

Tja, ás? Þetta hefði líka verið albatross hefði hann farið ofan í.

Brautin er 357 yarda þ.e. 326 metra og gefur auga leið að það að ná svona nálægt holu er ekki á valdi nema þeirra allra högglengstu s.s. Bubba.

Sjá má „næstum því ás“ Bubba á 4. hring TOC 2016 með því að SMELLA HÉR: