Kálfar Phil Mickelson
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 20. 2019 | 23:59

PGA: Stuttbuxur leyfðar! – Kálfar Mickelson vekja athygli!!!

Nú er loks orðið leyfilegt á PGA Tour, það sem hefir verið leyfilegt á Evróputúrnum frá árinu 2016, en það er að vera í stuttbuxum.

Þó er leyfið á PGA Tour bundið við æfingahringi og Pro-Am hringi, en margir leikmenn glöddust vegna þessarar breytingar.

Meðal þeirra var Phil Mickelson, sem þegar tók breytingunni fagnandi og tvítaði mynd af sér, ásamt afstöðu sinni.

Það var myndin af Mickelson, sem valdið hefir athygli, en myndin er tekin að aftan og sýnir hann í stuttbuxum.

Það sem athygli vekur eru stæltir kálfar hans sem m.a. fengu systur hans til þess að tjá sig um þá.

Tina Mickelson tvítað: „Með svona kálfa ættir þú að stökkva hærra,“

Phil datt ekkert sniðugt svar í hug tvítaði bara: „Jamms, maður skyldi halda það!“