Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 25. 2019 | 01:00

PGA: Trainer sigraði í Puerto Rico!!!

Það var Martin Trainer sem vann 1. sigur sinn á PGA Tour, á Puerto Rico Open, sem fram fór dagana 21.-24. febrúar 2019.

Sigurskor Trainer var 15 undir pari, 273 högg (70 67 69 67).

Sigur Trainer var nokkuð sannfærandi en hann átti heil 3 högg á þá sem deildu 2. sætinu, bandaríska kylfinginn Daniel Berger og kanadíska kylfinginn Roger Sloan, sem léku báðir á 12 undir pari.

Martin Trainer er e.t.v. ekki sá þekktasti á PGA Tour og má sjá kynningu Golf 1 á honum með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má lokastöðuna á Puerto Rico Open að öðru leyti með því að SMELLA HÉR: