Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 13. 2024 | 06:00

R&A Amateur u18: 4 íslenskir þátttakendur

Fjórir keppendur frá Íslandi taka þátt á R&A Amateur mótinu sem er fyrir keppendur 18 ára og yngri.

Á þessu móti keppa sterkustu áhugakylfingar heims og á mótið sér langa sögu.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, keppir í stúlknaflokki. Markús Marelsson, GK, Skúli Gunnar Ágústsson, GK og Veigar Heiðarsson, GA keppa í piltaflokki.

Alls eru 288 keppendur á þessu móti, 144 í stúlknaflokki og 144 í piltaflokki.

Leikið er á tveimur völlum við borgina Leeds á Englandi.

Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að fyrstu tvo keppnisdagana er leikinn höggleikur – og komast 64 efstu í holukeppnina sem tekur við eftir höggleikskeppnina.

Sjá má rástíma og stöðu í piltaflokki með því að SMELLA HÉR:

Sjá má rástíma og stöðu í stúlknaflokki með því að SMELLA HÉR:

1 keppnisdagur:
Skúli Gunnar og Markús eru jafnir í 5.-12. sæti á einu höggi undir pari vallar. Besta skorið er -3. Veigar er á +1 og er hann í 19.-25. sæti. Perla Sól lék á +8 á fyrsta hringnum og er hún 104. sæti og er hún þremur höggum frá 64. sætinu sem tryggir sæti í holukeppninni.

Texti og mynd: GSÍ