Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2012 | 20:55

Rory gekk frá kaupum á húsi í Flórída í dag

Nú fyrir skemmstu gekk nr. 1, Rory McIlroy frá kaupum á nýju húsi sínu í Palm Beach Gardens í Flórída.

Skv. þeim í Golf Digest Magazine fékk Rory slotið á $9,5 milljónir dollara.  Fréttir höfðu áður verið á reiki hvert verðið væri á eigninni en ásett verð var upphaflega 10,9 milljónir og fljótlega fór að fregnast að Rory hefði fengið höllina á $10 milljónir. Nú hefir Rory fengið 14% afslátt, þ.e. greiðir ekki „nema“ $ 9,5 milljónir.

Spurningin er hvers vegna?  E.t.v. staðgreiddi hann? ….. ja, eða fyrirsjáanlegt er að gangverð húsa í nágrenninu rjúki upp…. þetta eru aftur á móti vangaveltur!

Hér er linkur inn á ítarlegri grein Golf Digest um kaup Rory á húsi í Flórída SMELLIÐ HÉR: