Rory McIlroy er uppáhaldskylfingur Ingvars
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2012 | 09:15

Rory nr. 1 á peningalistum PGA Tour og Evrópumótaraðarinnar

Rory McIlroy frá Norður-Írlandi tryggði sér í gær 1. sætið á peningalistum beggja vegna Atlantsála þ.e. á PGA Tour og Evrópumótaröðinni, eftir að hafa náð 3. sætinu á Sentosa golfstaðnum í Singapore á Barclays Singapore Open mótinu.

Þetta þótti óheyrt afrek aðeins fyrir ári síðan þegar Luke Donald afrekaði það fyrstur kylfingar, þá nr. 1 á heimslistanum, líkt og Rory er núna.

McIlroy var á leið á Changi flugvöllinn þegar hann heyrði að hann væri sá yngsti til að leiða peningalistann í Evrópu í 32 ár eða allt frá því að Sandy Lyle var yngstur 1980 og  Seve Ballesteros á undan honum 1976.

„Það er virkilega geysilega ánægjulegt að verða loks nr. 1 á peningalistanum í Evrópu, sérstaklega eftir að hafa verið í 2. sæti s.l. 3 ár,“ sagði hann.

„Það hefir alltaf verið eitt af markmiðum mínum að verða nr. 1 í Evrópu allt frá því ég tryggði fyrst kortið mitt fyrir 5 árum, en síðan að vera nr. 1 bæði á Evrópumótaröðini og PGA Tour er ótrúlegt.“

„Ég er svo stoltur og auðmjúkur að vera jafnfætis svo mörgum frábærum nöfnum í golfsögu Evrópu, sem hafa verið nr. 1 á peningalistanum.“

„Og að hafa náð þessu markmiði þegar enn á eftir að spila á tveimur mótum í Race to Dubai þýðir að ég get farið inn í  UBS Hong Kong Open mótið og varið titil minn þar og síðan á DP World Championship Dubai án aukins þrýstings og bara notið þess að spila golf”.

„Að sigra í 2. risamóti mínu hefir þegar gert þetta að frábæru keppnistímabili fyrir mig en síðan að fylgja í fótspor Luke Donald og verða nr. 1 á báðum peningalistum er kremið á kökunni fyrir mig á þessu frábæra keppnistímabili.“

Og loks sagði Rory: „Ég setti sjálfum mér mikið af metnaðarfullum markmiðum í upphafi árs og ég hef náð svo mörgum að tilfinningin er frábær.“

„Ég er með gott forskot á heimslistanum, en þegar svona margir góðir kylfingar eru beggja vegna Atlantshafsins mun ég ekki geta hvílt á fornri frægð.  Markmið mitt er að halda áfram á næsta ári.“

Byggt að nokkru á grein á: Golf By Tour Miss