Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 19. 2012 | 10:50

Sólskinstúrinn: Oliver Bekker leiðir á Dimension Data mótinu á Fancourt eftir 3. dag

Það er Oliver Bekker sem skaust á toppinn eftir 3. dag á Dimension Data mótinu, þar sem spilað er á öllum 3 völlum Fancourt golfsvæðisins. Oliver spilaði á 71 höggi í gær og er á samtals 206 höggum eftir 3 hringi (65 70 71).

Merrick Bremner kom sér í  2. sæti með frábærum hring upp á 63 högg, sem var lægsta skor dagsins!

Þriðja sætinu deila 4 kylfingar m.a Englendingurinn Simon Wakefield, sá sem var efstur í Q-school Evróputúrsins 2010. Allir eru kylfingarnir í 3. sæti á samtals 208 höggum hver, þ.e. 2 höggum á eftir Ollie.

Það stefnir því í æsispennandi úrslitakeppni á Sólskinstúrnum í dag!

Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag á Dimension Data mótinu smellið HÉR: