Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2019 | 07:00

Sást til Kim í Kaliforníu

Anthony Kim (AK) er 33 ára, ári yngri en Dustin Johnson, en ekkert hefir sést til hans í atvinnumennskunni frá árinu 2012 þegar handarmeiðsli urðu til þess að hann varð að leggja golfskóna á hilluna. Það ….. og 8 stafa tryggingargreiðsla.

Og þar sem Kim, sem var m.a. vinsæll Ryder Cup leikmaður, hefir ekkert láta bera á sér þá tók athugull golfáhugamaður eftir Kim þar sem hann var á gangi með hund sinn í West Hollywood í Kaliforníu.

Benjamin Bujnowski, söluráðgjafi á Toast, sem er vinsæll morgunverðarstaður í Los Angeles, sá þegar maður ásamt kærustu sinni var á gangi með hund sinn. Hann þekkti Kim á tattúi af labrador hundi, sem hann er með á handlegg sínum.

„Þegar við vorum að fara kom einhver sem leit út eins og (AK) með kærustu sinni, en þau voru á göngu með hund sinn,“ sagði  Bujnowski við Golf.com. „Ég tók strax eftir tattúinu með Labradorinn við olnboga hans. Ég sneri mér að konu minni og dóttur og sagði: „Hamingjan sanna, þetta er Anthony Kim.

Bujnowski kom gangandi að Kim, kynnti sig og bað um að fá að taka mynd af sér með fyrrum atvinnumanninum (AK) og talaði stuttlega við hann.

Líkt og allir golfáhugamenn var Bujnowski forvitinn hvað liði golfleik (AK) þessa dagana, en (AK) var með stutt svar við fyrirspurnum aðdáandans um hvernig golfleikur hans væri.

(AK) sagði: „Um…non-existent“ (Lausleg þýðing: „Umm, hann er bara ekki til staðar.“)

Kim hefir verið í fréttum sl. vikur, aðallega vegna blaðamannafunda Rory McIlroy fyrir Masters, þegar hann var spurður hvernig hefði verið að spila á móti (AK) þegar hann náði metfuglafjölda (11) á 2. hring Masters 2009.  Sjá má góða grein Golf Digest um það afrek með því að SMELLA HÉR: 

Og það að það sást til (AK) hefir vakið upp endurminningar hjá golfáhugamönnum, sem endurlifa uppáhaldsgolfaugnablik sín með (AK).