Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2020 | 09:00

Sergio Garcia eignast son

Fyrir rúmri viku, á Föstudaginn langa,  eignuðust spænski kylfingurinn Sergio Garcia og kona hans, Angela Akins, son.

Af því tilefni tvítaði Sergio eftirfarandi:

„Happy Easter to everyone! We’re blessed to have welcomed Enzo Akins Garcia on Friday, April 10, at 6:25 pm. Enzo and Angela are both doing great, and Azalea is very happy to be a big sister! Hope you all have enjoyed Easter (and Masters) Sunday. God bless from our family to yours.

Lausleg þýðing:

Gleðilega páska, allir! Við erum blessuð þar sem við höfum boðið velkominn (í heiminn) Enzo Akins Garcia, föstudaginn 10. apríl kl. 6:25. Enzo og Angela hafa það gott og Azalea er ánægð að vera orðinn stóra systir! Vona að allir hafa notið páskanna (og Masters) á sunnudaginn. Við fjölskyldan óskum ykkar fjölskyldu Guðs blessunar.“

Búið er að færa Masters mótið fram í nóvember og það kemur sér vel fyrir Garica, því ef Covid-19 faraldurinn hefði ekki verið, hefði hann þurft að velja milli þess að vera viðstaddur fæðinguna eða taka þátt í risamótinu.