Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 24. 2019 | 08:00

Sigur Lowry á Opna breska næstum drap ömmu hans

Shane Lowry fagnaði mikið eftir sigur sinn á Opna breska risamótinu.

Myndbönd af honum þar sem hann syngur og dansar á írskri krá hafa farið eins og eldur í sinu um golffrétta- heima  – Sjá m.a. umfjöllum Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR: 

Þegar fréttamenn söfnuðust saman í kringum heimili hans og leituðu uppi fjölskyldumeðlimi og vini, til þess að fá viðbrögð þeirra við sigri Lowry, þá var samt ein sem stal senunni: Emily Scanlon, amma Lowry.

Í viðtali við írsku fréttastofuna RTÉ News, upplýsti Scanlon það sigur barnabarns síns, Shane Lowry hefði valdið því að hún hefði fengið sér fyrsta brandy glasið í 10 ár, reyndar tvö og það hefði næstum því drepið hana!

Sjá má viðtalið við þá gömlu með því að SMELLA HÉR: