Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 7. 2019 | 12:00

Snekkja Tiger við höfn skammt frá mótsstað PGA Championship

Búið er að færa „fjórða“ risamótið, PGA Championship, framar á árinu; en það hefir venjulega farið fram í ágúst og verið það síðasta í röðinni af risamótunum fjórum. Nú verður það framvegis risamót nr. 2.

PGA Championship fer nú í ár fram dagana 16.-19. maí 2019 á Bethpage Black vellinum, í Farmingdale New York, þ.e. í næstu viku.

Sumir eru farnir að spyrja sig að því hvort Tiger takist að bæta 16. risatitlinum við?

Skv. MarineTraffic.com er $20 milljóna snekkja Tiger, “Privacy,” í höfn við Oyster Bay, N.Y., sem er í u.þ.b. 13 mílna (þ.e. u.þ.b. 20 km) fjarlægð frá Bethpage Black.

Ég veit ekki hvort hann (Tiger) er þarna, en þetta er snekkjan hans,“ sagði starfsmaður við Oyster Bay Marine Center við Josh Berhow á Golf.com. „Ég veit virkilega, virkilega ekki mikið, en ég veit að þetta er snekkjan hans.“