Solheim Cup 2019: Hver stóð sig best… og hver verst?
Í fyrirsögn er spurt: Hver stóð sig best í nýafstöðnu Solheim Cup 2019?
Svarið við þessu virðist einfalt: lið Evrópu, þær sigruðu jú!
Það er rétt en ….. þetta er samt ekki svona einfalt; í keppni sem Solheim er það liðsheildin sem skiptir máli, en hér á eftir verður farið í hvernig hver og einn leikmaður af leikmönnunum 24 í Solheim Cup stóð sig.
Stelpurnar stóðu sig með eftirfarandi hætti:
Celine Boutier (Lið Evrópu) 4 stig 4-0-0
Georgia Hall (Lið Evrópu) 4 stig 4-0-0
Talað er um Boutier og Hall sem samsvarandi tvennd og „Molinari“ í Rydernum. Þær unnu alla leiki sína!!! Stóðu sig langbest af öllum. Saman voru þær Boutier og Hall með 5 stig af 14 1/2 sigurstigum liðs Evrópu.
Jessica Korda (Lið Bandaríkjanna) 3,5 stig 3-1-0
Nelly Korda (Lið Bandaríkjanna) 3,5 stig 3-1-0
Korda-systurnar skrifuðu sig í golfsögubækurnar í þessu Solheim Cup móti, sem fyrstu systurnar til þess að keppa í sama Solheim Cup liði fyrir Bandaríkin. Þær eru jafnframt fyrstu systurnar sem báðar eru með bestan árangur fyrir bandaríska liðið. Þær stóðu sig best af öllum í bandaríska liðinu í þessu Solheim bikars móti.
Charlie Hull (lið Evrópu) 3 stig 2-2-0 – Að undanskildum „Halltier“ stóð Hull sig best allra í liði Evrópu – vann inn 3 stig fyrir lið Evrópu: 1/2 stig í tvímenningnum og 2,5 stig með Azahöru Muñoz, sem var með 4. besta skorið í liði Evrópu.
Azahara Muñoz (Lið Evrópu) 2,5 stig 2-1-1
Brittany Altomare Lið Bandaríkjanna) 2,5 stig 2-1-1 Britany Altomare var á 3. besta skori þeirra bandarísku – Vann 1 stig fyir Bandaríkin í tvímenningnum og 1 1/2 stig í fjórmenningi og betri bolta.
Suzann Pettersen (Lið Evrópu) 2 stig 2-0-1 – Suzann er snillingur – Var á 5. besta skori þeirra evrópsku – setti niður sigurpúttið og var með 2 stig þ.e. 2 sigra í mótinu í 3 leikjum.
Angel Yin (Lið Bandaríkjanna) 2 stig 2-0-1
Brontë Law (Lið Evrópu) 2 stig 1-2-1
Carlota Ciganda (Lið Evrópu) 2 stig 1-2-1
Marina Alex (Lið Bandaríkjanna) 2 stig 1-2-1
Morgan Pressel (Lið Bandaríkjanna) 1 1/2 stig 1-1-1
Anna Nordqvist (Lið Evrópu) 1 stig 1-0-2
Annie Park (Lið Bandaríkjanna) 1-0-2
Lizette Salas (Lið Bandaríkjanna) 1 stig 1-0-2
Ally McDonald (Lið Bandaríkjanna) 1 stig 1-0-3
Anne Van Dam (Lið Evrópu) 1 stig 1-0-3
Danielle Kang (Lið Bandaríkjanna) 1 stig 1-0-3
Lexi Thompson (Lið Bandaríkjanna) 1 stig 0-2-2
Jodi Ewart Shadoff (Lið Evrópu) 1/2 stig 0-1-2
Meghan Khang (Lið Bandaríkjanna) 1/2 stig 0-1-2
Caroline Masson (Lið Evrópu) 1/2 stig stig 0-1-2
Caroline Hedwall (Lið Evrópu) 0 stig 0-0-2
Hedwall sem var með fullt hús stiga, 5 stig í Solheim keppninni 2013 og hefir gilt sem algjör Solheim Cup stjarna stóð sig verst allra í þessari Solheim Cup keppni. Hún byrjaði á að tapa leik sínum í betri bolta eftir hádegið á föstudeginum í mótinu ásamt Önnu Nordqvist og tapaði síðan 2 up leik sínum í tvímenningnum á sunnudeginum. Hún er stigalaus í þessu móti. Hún var bara með eftir hádegi á föstudeginum, hvíldi laugardaginn og tapaði leik sínum á sunnudeginum. Á móti kemur að hún spilaði líka fæsta leiki allra, eða aðeins tvo.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024