Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2019 | 23:00

Solheim Cup 2019: Ljóst hvaða 10 verða í liði Bandaríkjanna

Nöfn síðustu 3 kylfinganna, sem komast sjálfkrafa í lið Bandaríkjanna í Solheim Cup 2019  lágu fyrir í dag og er lið Bandaríkjanna í Solheim Cup 2019 næsta fullskipað.

Þessar 3 síðustu, sem komust sjálfkrafa í liðið eru: Brittany Altomare, Annie Park og Angel Yin (vinkona Ólafía Þórunnar „okkar“ Kristinsdóttur).

Ljóst var hverjar kæmust í liðið eftir LPGA mót vikunnar: CP Women’s Open, en mótinu lauk í Magna golfklúbbnum í Kanada nú fyrr í kvöld.

Fyrirliði liðs Bandaríkjanna, Julie Inkster mun síðan tilkynna um val sitt á 2 öðrum kylfingum á morgun, mánudag í New York.

Fyrir í sveit Bandaríkjanna eru þær Lexi Thompson, Nelly Korda, Danielle Kang, Lizette Salas, Jessica Korda, Marina Alex og Megan Khang.

Solheim Cup fer fram í Gleneagles, Skotlandi, dagana 13.-15. september n.k.