Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 21. 2012 | 08:00

Sólskinstúrinn: Oliver Bekker sigraði á Dimension Data mótinu á Fancourt

Á sunnudaginn nú um helgina var Oliver Bekker orðlaus þegar hann lyfti verðlaunabikar Dimension Data Pro-Am en golfspil hans hafði þegar sagt meira enn nóg 4 dagana á undan á  The Links, Montagu og Outeniqua golfvöllunum í Fancourt.

„Hvert skipti sem ég sigra eru allir svo upptendraðir, en mér léttir bara að hafa haldið mér í forystunni. Það er eins og fargi sé létt af manni,“ sagði Oliver, sem alltaf er kallaður Ollie.

Oliver Bekker eftir sigurinn á Di-Data á Fancourt í gær.

Ollie var á tánum vegna tveggja skolla, en hann náði taki á sér og innsiglaði sigurinn með 3 metra fuglapútti á 18. flöt og lauk þar með 2. hring sínum á Montagu vellinum á 70 höggum.

„Það er frábær tilfinning að sigra Di-Data (Pro-Am) –þetta er eitt aðalmótið á túrnum okkar (Sólskinstúrnum) – sigur á þessu móti er það sem mann dreymir um,” sagði hinn 27 ára Oliver Bekker.

Á Montagu velli Fancourt voru spilaðir 2 hringir.

Á mótinu eru 156 atvinnumenn sem paraðir eru með áhugamönnum og spilaður er betri bolti, en leikformið í keppni milli atvinnumannanna er höggleikur. Allir spila hring á einum þriggja valla Fancourt: The Links, Outeniqua og Montagu courses og lokahringurinn er spilaður á  Montagu.

Lið Jean Hugo og framkvæmdastjóra Sólskinstúrsins Selwyn Nathan varði titil sinn í betri boltanum.

Í höggleiknum átti Ollie  1 högg  á Merrick Bremner, var á samtals -11 undir pari, fyrir lokahringinn.

Thomas Aiken.

Ollie, rjómi Stellenbosch golfsklúbbsins,  fékk fugla á 10. og 11. flöt en missti högg á 13. og 15. og þeir sem voru á hæla honum Thomas Aiken og Tyrone Ferreira á lokahringnum eygðu sigursjéns. En úr honum varð ekkert þó Ferreira hafi náð erni á 18. braut.  Ollie spilaði á pari og fékk fugl á 18. og átti í lokin 2 högg á þá Aiken og Ferreira, sem deildu 2. sætinu.

Bekker vann Northern Cape Classic á síðasta ári en finnst að sigurinn í George í gær sé besti sigur hans til þessa. „Þessi sigur tekur fyrri sigri mínum fram. að spila á þessum völlum og vera fremstur það er virklega stórkostlegt.“

Loks sagði Bekker: „Þau atriði sem ég er að vinna að í spilinu mínu eru einfaldir og ef maður einbeitir sér að þeim hjálpar það manni að spila vel. Það skerpir einbeitinguna.“ sagði Oliver Bekker.

Sigurskor Ollie var samtals -13 undir pari, 276 högg (65 70 71 70).

Til þess að sjá önnur úrslit á Dimension Data Pro-Am smellið HÉR: