Sunna Víðisdóttir, GR on Korpúlfsstaða golfcourse, when she became Icelandic Junior Champion in Stroke Play 2012. Photo: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2012 | 23:55

Sunna Víðisdóttir sigraði í stúlknaflokki 17-18 ára á Unglingamótaröð Arion banka (3) á Korpúlfsstaðavelli

Það var forystukona gærdagsins, Sunna Víðsdóttir, GR, sem sigraði í dag á 3. móti Unglingamótaraðar Arion banka á Korpúlfsstaðavelli. Sunna spilaði á samtals 8 yfir pari, samtals 152 höggum (78 74). Sigur Sunnu var afgerandi því 10 högg skyldu hana og þá sem næst kom að.

F.v.: Rún, GR; Ásdís, GR og sigurvegarinn í stúlknaflokki Sunna, GR. Mynd: Golf 1.

Í 2. sæti varð klúbbfélagi Sunnu, Rún Pétursdóttir. Rún spilaði á samtals 18 yfir pari, samtals 162  höggum (80 82).

Rún Pétursdóttir, GR. Mynd: Golf 1.

Í 3. sæti varð Anna Sólveig Snorradóttir á 21 yfir pari, samtals 165 höggum (85 80).

Anna Sólveig, GK, (t.v.) varð í 3. sæti. Hér ásamt holli sínu í dag Höllu Björk, GR, (f.m) og Sögu Ísafold, GK, (t.h.). Mynd: Golf 1

Helstu úrslit í stúlknaflokki 17-18 ára urðu annars eftirfarandi:

Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Hringir Alls
Hola F9 S9 Alls Mismunur H1 H2 Alls Mismunur
1 Sunna Víðisdóttir GR 3 F 37 37 74 2 78 74 152 8
2 Guðrún Pétursdóttir GR 6 F 44 38 82 10 80 82 162 18
3 Anna Sólveig Snorradóttir GK 6 F 38 42 80 8 85 80 165 21
4 Ásdís Einarsdóttir GR 13 F 42 42 84 12 82 84 166 22
5 Högna Kristbjörg Knútsdóttir GK 10 F 41 42 83 11 84 83 167 23
6 Hildur Rún Guðjónsdóttir GK 15 F 40 41 81 9 90 81 171 27
7 Særós Eva Óskarsdóttir GKG 10 F 43 45 88 16 83 88 171 27
8 Halla Björk Ragnarsdóttir GR 9 F 43 43 86 14 86 86 172 28
9 Saga Ísafold Arnarsdóttir GK 10 F 47 43 90 18 86 90 176 32
10 Bryndís María Ragnarsdóttir GK 13 F 40 51 91 19 88 91 179 35
11 Andrea Jónsdóttir GKG 15 F 42 48 90 18 90 90 180 36
12 Sesselja Ósk Gunnarsdóttir GK 19 F 42 46 88 16 98 88 186 42
13 Hrafnhildur Guðjónsdóttir GO 22 F 48 47 95 23 96 95 191 47
14 Helena Kristín Brynjólfsdóttir GKG 21 F 49 41 90 18 104 90 194 50
15 Helga Kristín Gunnlaugsdóttir NK 15 F 56 42 98 26 98 98 196 52
16 Eydís Ýr JónsdóttirRegla 6-8a: Leik hætt GR 11 F 41 41 82 10 82 82 10