KAPALUA, HAWAII – JANUARY 08: Kevin Kisner of the United States lines up a putt on the sixth green during the second round of the Sentry Tournament Of Champions at the Kapalua Plantation Course on January 08, 2021 in Kapalua, Hawaii. (Photo by Gregory Shamus/Getty Images)
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 14. 2021 | 20:49

Svar Kevin Kisners við því hvort hann geti sigrað hvar sem er

Bandaríski kylfingurinn Kevin Kisner elskar Sony Open, sem er mót vikunnar á PGA Tour.

Frá árinu 2016 hefir hann þvívegis orðið meðal efstu 5.

Hann var spurður á því á blaðamannafundi fyrir mótið hvort hann gæti sigrað hvar sem væri?

Líklega ekki,“ svaraði Kisner. „Ég vinn líklega ekki mót á Bethpage Black eða Torrey Pines.“

Til hvers þá að mæta?“ var næsta spurning.

Vegna þess að þeir gefa mikinn pening fyrir 20. sætið,“ sagði Kisner brosandi.

Kevin Kisner tilkynnti við sama tækifæri að hann myndi fara í 6 vikna frí eftir mótið vegna þess að hann og kona hans eiga von á 3. barni sínu 11. febrúar n.k.