Tiger Woods Tiger Woods
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2019 | 13:00

Tiger með á Memorial og Opna bandaríska

Risamótagengi Tiger Woods er ansi risjótt – sigraði á Masters en náði ekki niðurskurði á Bethpage Black þ.e. á PGA Championship.

Tiger æfði heldur ekkert milli sigursins á Masters og þátttökunnar á PGA Championship og síðan var hann kærður fyrir manndráp – nokkuð erfitt að æfa við þá aðstæður.

Tiger hefir hins vegar tilkynnt að svo verði ekki nú – hann muni taka þátt í Memorial Tournament fyrir Opna bandaríska og vera í fríi vikuna fyrir risamótið.

Það sást til hans á golfstaðnum þar sem Opna bandaríska fer fram (sjá mynd hér að neðan).

Tiger tekur kærustu sína, Ericu Herman með á æfingar en kylfusveinn hans, Joe LaCava virðist fjarri góðu gamni.

Opna bandaríska fer fram 13.-16. júní 2019.