Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2019 | 15:00

Tiger og Zuel í samvinnu

Fyrrum kylfingur á Evrópumótaröð kvenna, Henni Zuel er farin að vinna á  GOLFTV og er þar titluð sem „Lead Tour Correspondent”, þ.e. hún fær að taka viðtöl og fylgjast með kylfingum á PGa Tour fyrir „Streaming“-þjónustu GOLFTV.

Nú hefir hún fengið sérstakt verkefni en það er að fylgjast með Tiger Woods.

Og samstarfið við Tiger hófst á móti vikunnar á PGA Tour núna, þ.e. Genesis Open, sem fram fer 11.-17. febrúar í Riviera Country Club, í Kaliforníu og lýkur á morgun.

Hlutverk Zuel næstu vikur er að fylgjast með Tiger bæði utan og innan vallar í mótinu; hún segir frá Tiger við keppni, þegar hann er við æfingar og samvinnu hans við teymi sitt.

Og hver er kylfingurinn Henni Zuel?

Þeirri spurningu hefir Golf1 svarað í grein um Zuel frá árinu 2014 og má rifja upp með því að SMELLA HÉR:

Hvað segir Zuel um þá stefnu sem hún hefir í lífinu? „Golf er ástríða mín og var þegar á yngri árum lífsfylling mín – það byrjaði allt með því að taka fyrstu skrefin í golfinu allt að þátttöku í Evrópumótaröð kvenna og nú er ég komin í hlutverk golffréttamanns og flyt fréttir af stærstu mótunum fyrir golfáhangendurna, sem sitja heima.“

Tiger Woods: „Ég er glaður með þá jákvæðu mótttökur sem fyrstu þættirnar á GOLFTV hafa fengið hjá golfáhangendum.“