Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 18:27

Unglingamótaröð GSÍ 2021 (5): Böðvar Bragi Íslandsmeistari í piltaflokki 17-18 ára

Íslandsmót unglinga í höggleik 2021 fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Hlíðavelli dagana 20.-22. ágúst 2021.

Böðvar Bragi Pálsson, GR, sigraði í flokki 17-18 ára en hann lék samtals á 2 höggum undir pari vallar, 214 höggum (73-68-73).

Breki Gunnarsson Arndal, GKG, varð annar á +10 samtals 226 höggum (74-76-76).

Jafnir í 3. sæti á 231 höggi eða +15 voru þeir Bjarni Þór Lúðvíksson, GR (78-75-78) og Mikael Máni Sigurðsson, GA, (78-73-80).

Sjá má lokastöðuna í piltaflokki 17-18 ára SMELLIÐ HÉR: