Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 23:59

Unglingamótaröð GSÍ 2021 (5): Daníel Ísak Íslandsmeistari í fl. 19-21 árs pilta

Íslandsmót unglinga í höggleik 2021 fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Hlíðavelli dagana 20.-22. ágúst 2021.

Daníel Ísak Steinarsson, GK, sigraði í flokki 19-21 árs á 3 höggum undir pari samtals en hann lék hringina þrjá á 213 höggum (67-74-72).

Tómas Eiríksson Hjaltested, GR, varð annar aðeins einu höggi á eftir, 214 höggum eða -2 samtals (73-68-73).

Aron Emil Gunnarsson, GOS, varð þriðji á +1 samtals eða 217 höggum (75-72-70).

Þátttakendur í flokki 19-21 árs voru 25 og sjá má öll úrslit með því að SMELLA HÉR: