Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 16:30

Unglingamótaröð GSÍ 2021 (5): Fjóla Margrét Íslandsmeistari í stelpuflokki

Íslandsmót unglinga í höggleik 2021 fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Hlíðavelli dagana 20.-22. ágúst 2021.

Fjóla Margrét Viðarsdóttir, Golfklúbbi Suðurnesja, sigraði í flokki 14 ára og yngri í stúlknaflokki á 228 höggum (76-76-76) eða 12 höggum yfir pari.

Eva Kristinsdóttir, Golfklúbbi Mosfellsbæjar, varð önnur á 16 höggum yfir pari vallar 232 högg (74-80-78).

Pamela Ósk Hjaltadóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur, varð þriðja á 28 höggum yfir pari, 244 höggum (82-82-80).

Sjá má lokastöðuna í stelpuflokki á Íslandsmóti unglinga í höggleik með því að SMELLA HÉR: