Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 17:15

Unglingamótaröð GSÍ 2021 (5): Gunnlaugur Árni Íslandsmeistari í drengjaflokki 15-16 ára

Íslandsmót unglinga í höggleik 2021 fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Hlíðavelli dagana 20.-22. ágúst 2021.

Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, sigraði í flokki 15-16 ára en hann lék á frábæru skori eða 4 höggum undir pari samtals – 212 höggum (71-69-72).

Oliver Thor Hreiðarsson, GM, varð annar á 230 höggum +14 samtals (73-76-81).

Jafnir í 3. sæti á 232 höggum (+16) voru þeir Elías Ágúst Andrésson, GR og Veigar Heiðarsson, GA.

Þátttakendur í drengjaflokki voru 27.

Sjá má lokastöðuna í drengjaflokki á Íslandsmóti unglinga í höggleik með því að SMELLA HÉR: