Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 17:30

Unglingamótaröð GSÍ 2021 (5): María Eir Íslandsmeistari í fl. 17-18 ára stúlkna

Íslandsmót unglinga í höggleik 2021 fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Hlíðavelli dagana 20.-22. ágúst 2021.

María Eir Guðjónsdóttir, GM, sigraði í flokki 17-18 ára en. hún lék samtals á 15 höggum yfir pari vallar, 231 höggi (74-78-79).

Katrín Sól Davíðsdóttir, GM, varð önnur á 241 höggi, +25 (77-84-80).

Nína Margrét Valtýsdóttir, GR, varð þriðja á 250 höggum, +34 (77-91-82).