Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 15:45

Unglingamótaröð GSÍ 2021 (5): Markús Íslandsmeistari í flokki 14 ára og yngri

Íslandsmót unglinga í höggleik 2021 fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Hlíðavelli dagana 20.-22. ágúst 2021.

Markús Marelsson, Golfklúbbnum Keili, er Íslandsmeistari í flokki 14 ára og yngri. Hann lék á 7 höggu yfir pari samtals eða 223 höggum (77-75-71).

Hjalti Jóhannsson, Golfklúbbnum Keili, varð annar á 233 höggum, 17 höggum yfir pari, (79-78-76).

Andri Erlingsson, Golfklúbbi Vestmannaeyja, varð þriðji á 241 höggi (80-84-77), 25 höggum yfir pari vallar.

Í strákaflokki voru 27 keppendur og má sjá öll úrslit með því að SMELLA HÉR