Viðtalið: Haukur Örn Birgisson, varaforseti GSÍ
Viðtalið í kvöld er við núverandi varaforseta GSÍ, sem gefið hefir kost á sér í komandi forsetakjöri GSÍ. Varaforsetinn hefir verið viðloðandi GSÍ, fyrst sem almennur starfsmaður Golfsambandsins og síðan við stjórnarsetu óslitið í tæpan áratug. Þing GSÍ hefst n.k. föstudag, 22. nóvember 2013. Hér er viðtalið við forsetaframbjóðandann:
Fullt nafn: Haukur Örn Birgisson.
Klúbbur: GO og svo er ég með aukaaðild í GF.
Hvar og hvenær fæddistu? Ég fæddist í Reykjavík, 3. desember 1978.
Hvar ertu alinn upp? Í Breiðholtinu, ég bjó þar til 25 ára aldurs, þar til ég kláraði námið, þá flutti ég að heiman.
Í hvaða starfi ertu? Ég er hæstaréttarlögmaður.
Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Ég á konu og 2 börn; eins árs stelpu og þriggja ára strák. Af okkur fjórum er það, fyrir utan mig, 3 ára strákurinn minn sem er duglegastur að spila en hann á plastkylfur, sem hann leikur sér með á Flúðum. Hann á tvö sett. Ég er búinn að reyna að ná konunni í golf og hef gefið henni nokkur golfsett – en þau standa óhreyfð inni á bílskúrsgólfi. Ég hef sagt henni að ef hún ætli sér að sjá fjöskylduna verði hún að byrja í golfi, því á golfvellinum munum ég og börnin vera í framtíðinni, þannig að hún getur ekki haldið mótþróanum áfram endalaust. Enn sem stendur er enginn áhugi hjá henni.
Hvenær byrjaðir þú í golfi? Ég byrjaði ungur 9-11 ára, fyrst vegna þess að foreldrar mínir voru í golfi og mikið á Flúðum – ég fór einstöku sinnum í golf á ári – en spilaði ekkert af alvöru fyrr en 18 ára. Eitt sumar, þegar ég var 14-15 ára var ég í Kili, þegar pabbi var þar, en síðan hef ég verið í Oddi og í Golfklúbbi Flúða.
Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi? Foreldrar mínir voru í golfi. Pabbi byrjaði og þannig kviknaði sá áhugi. Það er svo mikið golf kringum Flúðir, þar við eum með bústað.
Hvort líkar þér betur við skógar- eða strandvelli? Ef ég á að vera heiðarlegur þá eru það skógarvellir. Ég hef spilað meira á Spáni og í Flórída en skosku strandvellina. Ég hlakka samt til að breyta því og spila meira á Bretlandseyjum.
Hvort líkar þér betur holukeppni eða höggleikur? Holukeppni. Holukeppni er svona „ongoing“ kepppni á hverri einustu holu , meðan höggleikurinn er gerður upp í lokin. Holukeppnin er í raun síendurtekin keppni allan golfhringinn.
Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir á Íslandi? Af 18 holu völlunum er það heimavöllurinn, Urriðavöllur, en af 9 holu völlunum er það Geysir í Haukadal. Síðan líkar mér líka sérstaklega vel við Brautarholtsvöll og Vestmannaeyjavöll.
Hefir þú spilað alla velli á Íslandi? Ég, hef spilað alla 18 holu vellina.
Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir hvar sem er í heiminum? TPC Sawgrass og síðan Prestwick í Skotlandi – hann hefir ekkert breyst í 100 ár, en þar eru eldgamlar holur , mjög sérstakur völlur.
Hver er sérstæðasti golfvöllur sem þú hefir spilað á og af hverju? Sérstæðasti? Ætli það sé ekki Prestwick. Það er svo mikið af skrýtnum holum og svo fornum og þeim hefir ekki verið breytt. Á einni par-3 holunni er t.a.m. hóll beint fyrir framan teig og kringlótt skilti upp á honum með stefnuvísi hvar flötin sé. Svona holur eru bara ekki gerðar lengur í dag.
Hvað ertu með í forgjöf? 3,9.
Hvert er lægsta skorið þitt í golfi og hvar/á hvaða velli náðir þú því? Lægsta skorið er 3 undir par á Urriðavelli, 69 högg meðan völlurinn var par-72 en hann er par- 71 í dag. Þetta var í ágúst 2004 og í fyrsta sinn sem ég spilaði undir pari og undir 70.
Hvert er helsta afrekið þitt til dagsins í dag í golfinu? (Innskot: Hér er Haukur Örn of hógvær en hann sagði: „Ég hef nánast ekkert afrekað í golfi.“) Það er hins vegar ekki rétt og nægir þar að nefna fjöldamörg lögmannagolfmeistaramót, sem hann hefir sigrað í, en þess bera fjölmargir bikarar á skrifstofu hans vitni.
Hefir þú farið holu í höggi? Nei, ég ætlaði að gera það í sumar en það tókst ekki. Pabbi farið 4 sinnum holu í höggi, sem fer mjög í taugarnar á mér, þó ég samgleðjist honum, auðvitað.
Spilar þú vetrargolf? Ég get ekki sagt það. Yfirleitt spila ég ekki golf fyrr en í lok apríl og er hættur í lok september. Foreldrar mínir gera þetta mikið á Flúðum. Ég hef þá reglu að ég spila helst ekki golf í undir 10 gráðu hita.
Hvaða nesti ertu með í pokanum? Vatn, banana og golfbar próteinstöng.
Hefir þú tekið þátt í öðrum íþróttum? Já, já ég æfði fótbolta alla yngri flokkana og hand- og körfubolta með ÍR, Val og Gróttu.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn, uppáhaldsdrykkur, uppáhaldstónlist, uppáhaldskvikmynd og uppáhaldsbók? Uppáhaldsmatur minn er hreindýr; uppáhaldsdrykkurinn er Appelsínutoppur; uppáhaldstónslist er rokk; uppáhaldskvikmynd: „The Empire strikes back“ – sem var 5. Star Wars myndin; Uppáhaldsbók: Sú sem ég er að lesa hverju sinni og að þessu sinni er það „The Greatest Game Ever Played“ eftir Mark Frost.
Hver er uppáhaldskylfingurinn þinn nefndu 1 kvenkylfing og 1 karlkylfing? Kvk: Ég var alltaf svolítið hrifinn af Natalie Gulbis, en ég fylgdist með henni í Solheim Cup 2007, en ætli sú sem er í mestu uppáhaldi sé ekki Annika Sörenstam. Kk: David Duval.
Hvert er draumahollið? Ég og…. David Duval, Tiger og konan mín – það myndi þýða að hún sé byrjuð í golfi.
Hvað er í pokanum hjá þér og hver er uppáhaldskylfan þín? Allar kylfurnar mínar eru Titleist. Uppáhaldskylfan er 52° Vokey wedge-inn – Mér líður best með henni.
Hefir þú verið hjá golfkennara? Já, Magnúsi Birgissyni og Derrick Moore.
Ertu hjátrúarfullur? Nei, í prinsippinu er ég það ekki. En kannski svolítið ég merki boltann minn alltaf eins og sný honum eins þegar ég pútta.
Hvert er meginmarkmið í golfinu og í lífinu? Í golfinu er það að fara holu í höggi að verða forseti GSÍ – meginmarkmiðið er þó að fara holu í höggi. Í lífinu er það að vera góður pabbi.
Hvað finnst þér best við golfið? Félagsskapurinn – að fá tækifæri til að verja 4-5 klst með vinum sínum.
Hversu há prósenta af golfinu hjá þér er andleg (í keppnum)? 80% – spilamennska mín ræðst algjörlega af því hvernig ég er stemmdur hverju sinni.
Að lokum: Ertu með gott ráð sem þú getur gefið kylfingum? Að horfa á boltann.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024