Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2012 | 08:00

Golf 1 eins árs í dag!!!

Golf 1 er eins árs í dag, þ.e.  1 ár er frá því að fyrsta fréttin birtist á Golf 1 golffréttavefnum.  Það var frétt í greinaflokknum „Frægir kylfingar“ og um John F. Kennedy 35. forseta Bandaríkjanna, sem enn í dag þykir fremstur í golfi af þeim sem setið hafa í forsetastóli í Bandaríkjunum.. Sjá fyrstu grein Golf 1 með því að SMELLA HÉR: 

Frá því fyrir ári síðan hafa tæp 3500 greinar birtst á Golf1, þar af um 100 á ensku,  ásamt 110 myndaseríum. Það gerir u.þ.b. 9.6 greinar per dag allt árið um kring og hér um bil 1 enska grein eða myndaseríu í birtingu 3. hvern dag.

Golf 1 mun áfram flytja fréttir af 2. vinsælustu íþróttagrein á Íslandi ásamt því efni sem vefurinn er orðinn þekktur fyrir: úrslitafréttir af öllum helstu mótaröðum heims, afmælisgreinar, kynningar á og viðtöl við kylfinga, kynningar á golfvöllum, kynningar á golfbókum, sögur af golfi, golfútbúnaðargreinar, krakkana okkar á Áskorenda- og Unglingamótaröðum Arion banka, fremstu kylfingunum okkar á Eimskipsmótaröðinni, frægum og ekki svo frægum kylfingum, krökkunum okkar í bandaríska háskólagolfinu; fréttir af meistaramótum klúbba, sveitakeppnum, almennum mótum, hefðbundnum sem óhefðbundnum, kvenkylfingum sem karlkylfingum, ungum sem öldnum, íslenskum sem útlenskum, á ensku og íslensku.

Eins og lagt var upp með í upphafi er ekkert viðkomandi golfi Golf 1 óviðkomandi!

Bestu þakkir fyrir góðar viðtökur fyrsta starfsárið.

Ragnheiður Jónsdóttir, ritstjóri Golf 1.