Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 24. 2013 | 19:30

Nýju stúlkurnar á LET 2013: Helena Callahan (10. grein af 43)

Það voru 42 stúlkur sem hlutu kortin sín á LET, þ.e. Evrópumótaröð kvenna á lokaúrtökumóti Q-school LET, m.ö.o. Lalla Aicha Tour School 2013, sem fram fór í Amelkis golfklúbbnum og Al Maaden golfstaðnum í Marrakech, Marokkó, dagana 13.-17. desember s.l.

Þær 7, sem urðu í 36. sætinu auk frægðarhallarkylfingsins Lorie Kane (43. kylfingurinn til að hljóta kortið sitt á LET í ár og spilar á undanþágu) hafa þegar verið kynntar.

Í gær var byrjað á að kynna 1. stúlkuna af 5 sem deildu 31. sætinu þ.e. þýsku stúlkuna Leigh Whittaker.  Í kvöld verður fram haldið með Helenu Callahan. 

Fullt nafn: Helena Callahan

Ríkisfang: sænsk.

Helena Callahan

Helena Callahan

Fæðingardagur: 27. desember 1986.

Fæðingarstaður: Uppsala, Svíþjóð.

Nafn eiginmanns: Benjamin Callahan.

Áhugamál: Að verja tíma með fjölskyldu og vinum og matreiðsla.

Er félagi í: Saltsjobadens GK, í Svíþjóð.

Byrjaði í golfi: 7 ára.

Mestu áhrifavaldar í golfinu: foreldrar, Jonnie Eriksson, Mic Potter og Annika Sörenstam.

Menntun: útskrifaðist frá University of Alabama 2010.

Hápunktar á áhugamannaferli: Varð 7 sinnum meðal 10 efstu í bandaríska háskólagolfinu meðan hún var í University of Alabama. Lið Alabama háskóla vann SEC Women’s Golf Championship árið 2010. Helena var valin í NCGA All- American Scholar Team. Var á SEC Academic Honour Roll. Var á Dean’s List.

Atvinnumennskan: Spilaði á sænsku Nordea mótaröðinni árið 2010 þar sem besti árangur Helenu var T-6 á Daisland Resort Open, 11. sætið á Skyways Open, T-17 á Smadalaro Gard Open og  T-38th á IT-Arkitekterna Ladies Open.

Staða á Lalla Aicha Tour School 2013: T-31.