Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2013 | 21:30

Wake Forest reisir styttu til heiðurs Arnold Palmer

Einn frægasti fyrrverandi nemandi Wake Forest University  er Arnold Palmer, golfgoðsögn í lifanda lífi.

Skv. frétt í Winston Salem Journal ætlar útskriftarárgangur Arnold Palmer að reisa styttu til heiðurs kónginum.

Palmer hefir verið duglegur að styðja við bakið á karla- og kvenna golfliðum Wake Forest, The Demon Deacons, m.a. með því að styrkja úrbætur á golfaðstöðu við skólann 2010.

Auðmjúkur eins og alltaf sagði Palmer um fyrirhugaða styttu af sér: „Það er fallegt af þeim að gera þetta. Ég er ekki viss um að ég eigi það skilið. En samt, ég get ekki beðið eftir að sjá hana og þakka öllum sem komu að þessu.“

Palmer stundaði nám á sínum tíma í Wake Forest á golfskólastyrk.