Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2012 | 07:00

Westwood verður ekki með á Dunhill Links

Lee Westwood, ein af hetjunum í Ryder Cup liði Evrópu hefir dregið sig úr Dunhill Links Championship, sem hefst í Skotlandi á morgun.

Hinn 39 ára liðsmaður Ryder bikarsliðs Evrópu þarf lengri tíma til þess að hvíla sig eftir átök s.l. helgi.

Þá eru aðeins þrír eftir af vinnings Ryder Cup liði Evrópu sem taka þátt í mótinu: Paul Lawrie, Peter Hanson og Martin Kaymer — auk eins úr bandaríska tapliðinu,  Dustin Johnson.

Westwood vann mótið 2003, og Lawrie tveimur árum áður og Kaymer fyrir tveimur árum (2010) rétt eftir sigur Ryder bikars liðs Evrópu í Celtic Manor. Í þetta sinn tekur Kaymer þátt sem sá liðsmaður sem tók úrslitapúttið sem hélt bikarnum í Evrópu.

Heimild: Belfast Telegraph