Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2018 | 08:00

WGC: Finau efstur e. 2. dag í Kína

Það er Tony Finau sem er efstur eftir 2. dag á WGC-HSBC Champions, sem fram fer á Sheshan International golfvellinum í Shanghaí í Kína.

Finau hefir spilað hringina 2 á samtals 11 undir pari, 133 höggum (66 67).

Hann hefir 3 högga forskot á þá 3 sem næstir koma en það eru Tommy Fleetwood, Justin Rose og Patrick Reed, sem allir hafa spilað á samtals 8 undir pari, hver.

Til þess að sjá högg dagsins eftir 2. dag SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá stöðuna á Sheshan Int. Championship SMELLIÐ HÉR: