Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 21. 2021 | 09:00

Women’s Open 2021: Harigae og Hall efstar og jafnar í hálfleik

Síðasta risamót ársins hjá konunum hófst sl. fimmtudag og stendur dagana 19.-22. ágúst á Carnoustie linksaranum í Skotlandi.

Það ber heitið AIG Women´s Open.

Í hálfleik eru þær Mina Harigae frá Bandaríkjunum og hin enska Georgia Hall efstar, en báðar hafa spilað á 7 undir pari.

Sei Young Kim frá S-Kóreu og Lizette Salas fra Bandaríkjunum eru skammt undan á samtals 6 undir pari, hvor.

Sjá má stöðuna í hálfleik á Women´s Open með því að SMELLA HÉR: