Zach Johnson vann Tiger í bráðabana á World Challenge
Masters sigurvegarinn (2007) Zach Johnson bar nú rétt í þessu sigur úr býtum á Northwestern Mutual World Challenge. Mótið fór fram 5.-8. desember í Sherwood GC í Thousand Oaks, Kaliforníu og var aðalkeppninautur hans Tiger Woods, gestgjafi í mótinu, þar sem 18 af einhverjum bestu kylfingum heims tóku þátt.
Zach Johnson lék á samtals 13 undir pari 275 höggum (67 68 72 68)
Keppnin var æsispennandi en Tiger var enn með 1 höggs forystu á 16. holu en það breyttist þegar Zach fékk fugl á 17. en Tiger „bara“ par. Allt sem sagt jafnt. Báðir fengu síðan par á par-4 lokaholuna og því báðir jafnir eftir leik á 72 holum. Það varð því að koma til bráðabana og þar hafði Zach betur þegar á 1. holu, en það var einmitt par-4 1. hola Sherwood vallarins sem var leikin. Þar fékk Zach par en Tiger skolla.
Tiger Woods varð sem sagt í 2. sæti, á samtals 13 undir pari, 275 höggum (71 62 72 70) og 3. sætinu deidu síðan þeir Bubba Watson og Matt Kuchar bróðurlega á milli sín; báðir á 9 undir pari, 279 höggum; Kuchar (68 68 76 67) og Watson (70 70 69 70).
Til þess að sjá lokastöðuna á Northwestern Mutual World Challenge SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá hápunkta lokadagsins á Northwestern Mutual World Challenge SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024